Vertu undirbúinn þegar norðurljósin birtast
Íslensk útgáfa
Þegar norðurljósin skella á er auðvelt að lenda í að hlaupa um eins og hauslaus hæna og vita ekki hvaða stillingar eigi að nota og hvaða myndbygging væri heppilegust.
Þessi rafbók (ePUB) er byggð á kafla úr bókinni okkar Photographing Iceland - A Photo Guide to 100 Locations auk viðbóta sem fara ítarlegar í ljósmyndun norðurljósa. Ætlunin er að fara yfir helstu grunnatriði sem hafa þarf í huga og ýmis hagnýt atriði sem við fáum oft spurningar um. Heilræðin sem við reynum að gefa byggjast á okkar reynslu og hafa það markmið að hægt sé að ná frambærilegum ljósmyndum af norðurljósum.
Það er ekki ætlunin að kenna hér dýpstu fræði norðurljósa né fara djúpt í tæknilegar lýsingar. Hér er snert á því sem mestu skiptir til að ná faglega tekinni ljósmynd af norðurljósum og gert er ráð fyrir að lesandinn hafi undirstöðuþekkingu á myndavélinni.
- Vertu með á hreinu hvernig á að stilla myndavélina.
- Hægt er að lesa bókina í síma, iPad eða tölvu.
- Hönnun rafbókarinnar aðlagast öllum skjástærðum (reflowable ePUB)
- Fjöldi hagnýtra ráða um myndbyggingu.
- Fjallað er um stillingar á myndavélinni og tekin mörg dæmi.
- Lengd: 5000 orð
Þú færð skjal sem þú getur opnað í t.d. símanum þínum. Textinn og myndirnar eru í alvöru rafbókarformi sem aðlagast öllum skjástærðum.
Við lögðum mikla vinnu í bókina og því treystum við á að þú deilir henni ekki með öðrum.